Skilmálar

Skilmálar

Skilmálar

Maro – garn og fylgihlutir ehf.

Hlíðarfótur 11, 102 Reykjavík

Kt: 631118-0380  VSK nr: 133212

maro@maro.is.

S: 856 0533

Afhendingartími

Afhendingartími er 2-4 virkir dagar eftir að pöntun berst og greiðsla hefur átt sér stað. Vörur eru að jafnaði póstlagðar næsta virka dag á opnunartíma verslunar og sendar með B-pósti hjá Íslandspósti eða með Dropp.

Athugið að vara sem pöntuð er eftir hádegi á föstudegi eða um helgi er ekki send fyrr en á þriðjudögum eða næsta virka dag á opnunartíma verslunar. 

Sendingarkostnaður

Sendingarkostnaður bætist við pöntun áður en greiðsla fer fram. Hægt er að fá sendingu á næsta pósthús 990 kr. eða heimsendingu upp að dyrum á 1190 kr. Sendingarkostnaður fellur niður ef verslað er fyrir 15.000 kr. eða meira. Viðskiptavinur ber ábyrgð á að rétt heimilisfang sé skráð á pöntun. Einnig er hægt er að sækja vörurnar í verslun að Hlíðarfæti 11, 102 Reykjavík.

Greiðslur

Hægt er að greiða með Visa og Mastercard, Pei, eða Netgíró.

Ef greitt er með Visa eða Mastercard er korthafi fluttur á örugga greiðslusíðu Teya þar sem greiðslur eiga sér stað í vottuðu og dulkóðuðu umhverfi. Maro.is tekur hvorki við né geymir kortaupplýsingar og útilokað er fyrir utanaðkomandi aðila að nálgast upplýsingar um kortanúmer.

Ef greitt er með Netgíró þarft þú að vera með aðgang hjá Netgíró. Þeirra skilmála má sjá hér.

Verð

Maro.is áskilur sér rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp sökum prentvillna. Öll verð í vefverslun eru birt með virðisaukaskatti en sendingarkostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Við látum viðskpitavini vita ef vara er ekki til á lager og endurgreiðum vöruna eða bjóðum upp á aðra vöru.

Skil á vörum sem keyptar eru í netverslun

Ef vara sem keypt er í netverslun uppfyllir ekki væntingar kaupanda er hægt er að skila henni innan 30 daga frá pöntun. Þegar vöru er skilað skal hún vera ónotuð/óskemmd, í upphaflegum umbúðum og kvittun þarf að fylgja. Maro áskilur sér rétt til að taka ekki aftur við vöru sé ástand hennar ófullnægjandi en við skil er allt garn vigtað og skoðað með tilliti til ástands. Kaupandi í netverslun hefur rétt á endurgreiðslu innan 14 daga frá kaupum. Séu 14 dagar liðnir fær viðkomandi inneignarnótu vilji hann ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru. Sé óskað eftir því að skila vöru skal hafa samband í tölvupósti á maro@maro.is. Ekki er hægt að skila tilboðsvörum nema í aðra tilboðsvöru.

Skil og skipti á vörum sem keyptar eru í verslun að Hlíðarfæti 11

Sé vara keypt í verslun gilda eftirfarandi skilareglur:
Skilafrestur á garni eru 8 vikur
Skilafrestur á öðrum vörum eru 30 dagar
Þegar vöru er skilað skal hún vera ónotuð/óskemmd, í upphaflegum umbúðum og kvittun þarf að fylgja. Maro áskilur sér rétt til að taka ekki aftur við vöru sé ástand hennar ófullnægjandi en við skil er allt garn vigtað og skoðað með tilliti til ástands. Við skil getur kaupandi fengið aðra vöru í staðinn eða inneignarnótu en ekki er boðið upp á endurgreiðslu í peningum. Ekki er hægt að skila tilboðsvörum nema í aðra tilboðsvöru.