Curve er ný og endurbætt útgáfa af útskiptanlegum prjónum frá Seeknit með skrúfgang úr ryðfríu stáli.
Prjónarnir koma tveir saman í pakka og eru fáanlegir í þremur lengdum: 10 cm, 12,5 cm og 15 cm.
Tvær stærðir eru af snúrum sem seldar eru sér:
– M1.8 fyrir prjónastærðir 2,0-3,25 mm
– M2 fyrir prjónastærðir 3,5-10 mm.
Hægt er að nota Curve með Koshitsu, eldri gerð útskiptanlegra prjóna frá Seeknit, en nota þarf millistykki milli Curve M2 og Koshitsu M4.







