| Tungumál | Enska, Danska |
|---|
Skall – Strik
Skall Knit er fyrsta prjónabókin sem danska hönnunarstúdíóið Skall, sem er meðal annars þekkt fyrir hönnun og framleiðslu á tímalausum prjónaflíkum og áherslu á hægtísku, gefur út. Bókin hentar byrjendum sem lengra komnum þar sem farið er vel í prjónatækni, eins og til dæmis kaðlaprjón og munsturprjón með litum.
Í bókinni eru 14 prjónauppskriftir af klassískum og nýjum prjónaflíkum frá Skall ásamt fróðleik og hugleiðingum um prjónahönnun og viðhorf til hægtísku. Bókin er því lífstíðareign fyrir alla sem hafa áhuga á prjónaskap og tímalausri hönnun.
Í öllum uppskriftum er uppgefið garn frá Hjelholts Uldspinderi.
kr.11.900
Vörunúmer
SKALL
Vöruflokkur Prjónabækur
Ráðgjöf
Fáðu aðstoð við að velja rétt garn og/eða rétta liti í s: 856 0533
Viltu að við vindum hespurnar fyrir þig?
Óskaðu eftir því í athugasemd í netpöntun.








